HTML visitor Tracker

Friday, January 19, 2007

Jeii!!! Loksins búin í prófum, kláraði síðasta prófið í gær sem var munnlegt próf, vá hvað það gekk ekki vel en ég náði því að á einhvern undraverðan hátt. Það er frekar krefjandi að þurfa að tala dönsku í klukkutíma og það eitthvað að viti:S

Nú er bara að nota næstu daga í afslöppun og að undirbúa það sem á eftir að gera áður en stelpan kemur.
Mig dreymdi reyndar í fyrrinótt að ég ætti strák, það væri nú frekar fyndið ef það kæmi svo bara lítill kall....gæti alveg skeð, þá yrði ég bara að hafa hann metró í bleiku eins og pabbi sinn:)
Annars er heilsan bara ágæt, leið betur eftir að ég gat hvílt mig eftir törnina fyrir prófið 12. jan, stress og þreyta hefur greinilega mikið að segja hvað varðar bjúg, því hann minnkaði alveg helling eftir að ég gat slappað af, sem er alveg yndisleg. Grindargliðnunin er orðin meiri núna en það er eflaust bara eðlilegt á þessum tímapunkti. Það sem hrjáir mig helst núna eru kvef leiðindi sem er víst algengur kvilli á meðgöngu, vona að ég losni við þennan fjanda fyrir fæðingu.

Ljósmyndarinn var upptekinn við próflestur svo ég tók bara nokkar bumbumyndir sjálf. Veit ekki hvort það verða fleiri bumbumyndir, kannski ef ég fer langt fram yfir sem ég vona reyndar ekki.



það er nú bara eins og ég eigi vona á tvíburum á þessari mynd





18 Comments:

Blogger Þórhildur Hagalín said...

ofsalega er thetta fínn malli!
til hamingju med prófalok ástin mín, ég skáladi fyrir theim í gaer - svona fyrst thú getur thad ekki :) bíd spennt eftir fréttum af thér. slappadu vel af thangad til!

11:25 AM  
Blogger Telma said...

Falleg bumba:)

11:35 AM  
Blogger Unknown said...

úúúú spennandi!
kossar

11:48 AM  
Anonymous Anonymous said...

Æðisleg bumba, hlakka til að sjá einstaklinginn sem kúrir inni í henni!

2:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Bjútifúl! Gangi þér vel með sænskuna í fæðingunni! ;)

3:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

nú fer þetta bara að skella á... ég hlakka sko mikið til að hitta litlu skvís. ég ætla að knúsa mallann þinn amk einu sinni áður en hún lætur sjá sig. heyrumst á morgun :)

5:53 PM  
Anonymous Anonymous said...

You been eatin' too many sammiches!
Lookin good though - any day now a little Gweedoling!
Andy

7:12 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ, hæ.

Bumban er glæsileg!!

Vonast til að geta hitt ykkur öll þrjú þegar ég verð í Köben 9-13. feb.

Kveðja
Ólafía frænka

10:18 PM  
Blogger Ásdís said...

já gott að þú getur kvílt þig aðeins fyrir átökin.... bestu kveðjur Ásdís

12:34 AM  
Anonymous Anonymous said...

úff ég fæ alveg sting í magann. Það er svo gott að fá barnið í fangið og halda að maður sé orðin grannaur aftur með tóman poka framan á sér. Hlökkum til að heyra fréttirnar af ykkur. Gangi ykkur endalaust vel..
kveðja Halla og co

12:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

bara einn dagur eftir.... ég er orðin svakalega spennt! hlakka mikið til að heyra frá ykkur þremur bráðum. Bumban lítur afar vel út, farðu vel með þig og hana!
kossar ágústa

12:58 PM  
Anonymous Anonymous said...

Vá! Kristín þú er beautiful!! Hlakka ekkert smá mikið til að sjá hvernig þetta allt saman fer. Er búin að hugsa mikið til þín undanfarið, sérstaklega núna um helgina því að við Jósa erum á Laugarvatni að leikstjórast...ýkt gaman!

3:52 PM  
Blogger augnpot said...

Þú lítur vel út bumba mín. Hafðu það náðugt og losnaðu við bjúgun... :) Hlakka til að sjá litlu Kristínulínu.

Blitzzz

6:15 PM  
Blogger Ýrr said...

ó mæ got, ég er svo spennnnt!!!!

5:47 PM  
Blogger pixy said...

váááá... en stór bumba. hlýtur að vera myndarbarn inni í henni.

5:45 PM  
Blogger Unknown said...

www0705

pandora charms
ralph lauren polo
kate spade outlet
air max 90
chloe outlet
uggs outlet
isabel marant outlet
coach outlet online
longchamp handbags
toms shoes

7:46 AM  
Blogger Unknown said...

0822jejeN'importe nike air jordan 3 femme rouge grislanc qui aime se déguiser et se délecter d'une réunion passionnante. casquette nike air jordan Ensuite, ces chaussures sont économiques que chaussure nike homme promotion Nike Shox Monster SI vous chaussures nike air max 97 enfant pouvez obtenir plusieurs paires. Ils portaient nike internationalist femme rue du commerce un mélange de chapeaux qui ne asics go sport running convenaient pas aux conditions auxquelles ils étaient confrontés.

8:37 AM  
Blogger zzyytt said...

supreme clothing
james harden shoes
kobe byrant shoes
michael kors outlet online
coach outlet
jordan retro
air jordans
moncler outlet
yeezy boost 350
nike air max shoes

8:59 AM  

Post a Comment

<< Home