HTML visitor Tracker

Wednesday, January 31, 2007

Ekkert bólar á litlu, hélt kannski að allur æsingurinn vegna leiksins í gær myndi koma öllu af stað en það þarf greinilega eitthvað meira til í mínu tilviki.
Á morgun förum við upp á spítala þar sem ljósmóður kíkir á mig, okkur var boðið að taka þátt í rannsókn (igangsættelsesprojekt) þar sem verið er að kanna hvort nálastungur og leghálsnudd (massage af livmoderhals) geti komið fæðingunni af stað. Við slógum til enda þokkalega til í allt þessa stundina....vona bara að það hafi einhver áhrif.

Fékk að vita um daginn að ef við eignumst litlu fyrir mánaðarmótin s.s. í dag þá fáum við fæðingarstyrkinn núna um mánðarmótin en ef hún fæðist á morgun eða seinna þá fáum við ekki borgað fyrr en í byrjun mars......"þú verður bara að reyna að fæða fyrir mánaðarmótin..." sagði konan hjá TR. Já já það er einmitt á to do listanum hjá mér...pirr.

Heyrumst
Kristín

13 Comments:

Blogger Unknown said...

Hlýtur 'livmoderhals' ekki að vera legháls? Legganganudd hljómar ekkert svo vel í þessu samhengi :/

3:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

He he kannast við pirringinn út í TR við hefðum t.d fengið meira í fæðingarorlof ef ég hefði átt í janúar í staðin fyrir lok október, ég tilkynnti þeim ekki mjög pent að ég mundi þá bara halda í mér þanngað til í janúar :-)
Gangi ykkir rosa vel.

3:30 PM  
Blogger Kristin said...

já þett á víst að vera legháls

3:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir sidast, skvisa! Gaman ad hitta tig og bumbuna!
Eg sem var viss um ad allt myndi fara af stad i nott hja ter eftir leikinn... Mig dreymdi meira ad segja i nott ad tu værir ad eiga! Tetta var samt frekar fyndinn draumur: Tu varst uti a gøtu og tetta gerdist allt svo hratt tannig ad tu attir bara tarna a stadnum... og svo kom STRAKUR! ....og svo aftur STRAKUR! ...og svoooo STELPA!
Meira hvad draumar geta verid rugladir! ;)
Vona ad snullan litla skelli ser i heiminn a morgun eftir tilraunastarfsemina. :) Hugsa til ykkar.
Knus,
Magga.

3:42 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég held að það skipti ekki máli, þú færð þá bara síðustu borgun einum mánuði síðar, það verður varla mjög leiðinlegt.

10:41 PM  
Blogger pixy said...

Koma svo Kristín... Þetta kemur allt á endanum.

Annars var ég að vinna síðasta vinnudaginn minn fyrir 365 fjölmiðlasamsteypuna í dag. Ef ég fer aftur í þetta batterí, þá verður örugglega búið að finna enn eitt nýtt nafn á það þegar þar að kemur.

1:54 AM  
Blogger augnpot said...

Sannarlega langar mig ekki í svona nudd. ikk. Ég held að hún litla hljóti að líkjast föður sínum fyrst hún er svona róleg í tíðinni. Ef hún væri like her mother þá væri hún búin að skjóta sér út, fá sér mjólkursopa, skipta á sér og búin að skrá sig í kór. Jafnvel farin að stjórna hópsöng í einhverri brekkunni! Good luck með rembið og allt það. Kossar og knús - þetta kemur í nótt!

9:06 PM  
Blogger Kristin said...

he he þú ert fyndin

11:09 PM  
Anonymous Anonymous said...

haha... thorbjörg thú ert mjög fyndin en rosalega vaeri samt heimurinn ríkur ef thad vaeru til tvö eintök af henni kristínu :)
skaftafellsminningakvedja med ást og kossum

10:10 AM  
Blogger Rut said...

hahaha þorbjörg, held þetta sé bara rétt hjá þér.

við getum ekki beðið eftir að heimsækja ykkur næst. nenni ekki að heimsækja þig enn einu sinni þar sem þú ert með bumbu... grín. bumban fer þér svo svaka svaka vel, ég er bara svo spennt að hitta hana dúddu.

12:02 PM  
Blogger Unknown said...

www0705

pandora charms
mulberry handbags
michael kors outlet
air more uptempo
polo ralph lauren
christian louboutin outlet
ugg outlet
uggs outlet
ferragamo shoes
polo outlet

7:45 AM  
Blogger Unknown said...

0822jejeLes ophtalmologistes, asics gel lyte v volcano prix même ceux qui exercent déjà leur profession, sont mis au courant des air jordan son of mars homme recherches récentes et avancées sur le remède basket nike flyknit pas cher des maladies oculaires de leurs clients. Les couleurs air max femmes 2017 nike de cette chaussure comprennent: Blanc / Noir / asics gel lyte noir pas cher Sport Rouge, Noir / Aubergine / Argent / Noir et asics cuir homme Noir / Argent / Photo Bleu / Noir. chaussure nike homme 2017 air max La consistance supposée ne fonctionne pas et réduit le acheter nike roshe run homme nettoyage.

8:35 AM  
Blogger zzyytt said...

supreme clothing
james harden shoes
kobe byrant shoes
michael kors outlet online
coach outlet
jordan retro
air jordans
moncler outlet
yeezy boost 350
nike air max shoes

8:59 AM  

Post a Comment

<< Home