HTML visitor Tracker

Saturday, March 03, 2007

Það er orðið allt of langt síðan ég hef bloggað, dagarnir líða bara áfram og það ekkert smá hratt, sú litla bráðum að verða mánaðar gömul, alveg ótrúlegt.
Hjúkrunarkonan kom á fimmtudaginn, til að líta á litlu, ég var fegin að sjá hana þar sem ég var búin að vera með áhyggjur af því hvað litla drykki lítið, hélt að hún væri því ekki að fá nóg, en annað kom á daginn, litla músin okkar hafði þyngst um hálf kíló frá seinustu heimsókn sem er mjög gott og meira að segja aðeins yfir meðallagi, hún er þá bara voðalega fljót að drekka, gleypir bara í sig sem því miður skilar sér í magakveisu þar sem hún er líka dugleg að gleypa loft. Hún er því búin að vera með magapílur og stundum frekar óróleg.
Hjúkkan mældi með því að við fengjum okkur auka vagn á svalirnar til að láta hana sofa í þar sem það er ekki hægt að koma með vagninn okkar upp, við fengum því ömmu og afa á Selfossi sem eru í heimsókn, til að koma með gamlan vagn sem ég vona að hún eigi eftir að sofa vel í, hún sefur allaveganna vel í sínum vagni.

þau geta svo sannarlega bæði brætt hjörtu hörðustu manna




Hér eru svo fleiri myndir:
Gott að vera hjá mömmuAnna og Hákon komu í heimsókn


lallalæ

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hún er alveg yndisleg. Hlakka til að hitta ykkur á fimmtudagskvöldið, endilega látið mig vita ef ég á að koma með eitthvað af klakanum. Bestu kveðjur Magga frænka og co

4:14 PM  
Blogger Anna said...

haha ég sagði að hún hefði stækkað :)

4:28 PM  
Anonymous Anonymous said...

Vá hún er bara alveg eins og þú Gauji :-)
Kveðja, Unnur.

5:32 PM  
Blogger Jon Olafur said...

Já há, drekkur hratt og mikið. Ég barasta held að hún sé dóttir pabba síns - hehe

12:46 PM  
Blogger Þórhildur said...

heimsins saetustu maedgur!
kiss kiss

1:56 PM  
Blogger Birna Kristín said...

Stundum finnst mér hún vera alveg eins og mamma sín, en síðan er hún óneitanlega býsna lík pabba sínum líka. Ótrúlega mannaleg miðað við hvað hún er ung, frábært að heyra hvað hún dafnar vel.
Kær kveðja,
Birna

10:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með krúsídúlluna ykkar. Bestu kveðjur frá Akureyri,

Gísli Jóhann

5:05 PM  
Blogger Dagbjört said...

Hæ hæ sæta fjölskylda, langaði að kasta á ykkur kveðju og óska ykkur til hamingju með litlu prinsessuna. Ég hef oft kíkt á síðuna ykkar, hún er ekkert smá sæt litla dúllan, mér finnst hún soldið lík Guðjóni.
Kær kveðja Dagbjört (úr hagfræðinni)

12:47 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hæhæ, vá hvað hún er falleg! sker sig greyniglega í ættina;-)
Gott að heyra að allt gengur vel, hafið það bara sem allra best.
kveðja Iðunn "frænka"

12:10 PM  
Anonymous Bæklingurinn said...

Halló sæta fjölskylda ;)
Litla prinsessan er ekkert smá sæt og fín.
Strákunum finnst voða gaman að skoða myndirnar af litlu frænku og ýta mér helst frá tölvunni þegar þeir eru að skoða :)
Hlakka voða mikið til að sjá ykkur þegar þið komið til Íslands.
Kær kveðja Guðbjörg og geirarnir.

12:36 PM  

Post a Comment

<< Home