HTML visitor Tracker

Saturday, May 26, 2007

Dönsk skal hún verða...

Nú er Kristín komin í gírinn hvað varðar lærdóminn og ég er orðinn full-time dad. Það er bara ekkert öðruvísi. Við Emilía Ólöf vöknum ævinlega saman kl. 7 -8 á morgnana og förum að leika okkur, síðan fer Emilía út á svalir og sefur til rúmlega 1. Eftir það hefst yfirleitt leikfimi hjá Emilíu þar sem hún æfir sig t.a.m. í hálsinum og höndum og fótum. Einnig er svo komið að hún hefur reynt að velta sér á leikteppinu sínu og virðist ekki langt í að það muni takast. Síðan fer Emilía í oftar en ekki langar göngur með mér.

Á einni af okkar göngum var farið til kirkjunnar í Valby, sem heitir eftir Jóhannesi skírara og var nafn Emilíu opinberlega skráð í danskar bækur. Hér með tel ég að hún verði meðhöndluð sem danskur þegn og ekki bara það heldur sem meðlimur í den Danske Folkekirke.

Það urðu undur og stórmerki í gærkvöldi, þegar Emilía náði þeim merka áfanga að geta sofnað óstudd. Við foreldrarnir höfðum verslað okkur bók sem fjallar um leiðir til að svæfa þessi litlu kríli án mikils gráturs og gnístan tanna. Hér er um að ræða 6 skrefa kerfi til þess arna og teljum við okkur vera á 1. til 2. skrefi. Þetta virðist því vera að bera einhvern árangur.

En myndir koma hér:


Bolla í blúndufötum

Mamma sæta og Emilía sæta

Hann pabbi og Emilía

Hálf misheppnuð fjölskyldumynd en betri helmingurinn sést þó vel ;o)

Emilía er góð fyrirsæta

Alltaf kampakát

...og mjög stutt í grínið

Hissa

Pabbi minn er lang lang sterkastur

Friday, May 04, 2007

Vá það er alveg kominn tími á myndir og smá fréttir af okkur. Það er nú meiri veðurblíðan hér í henni Kaupmannahöfn, sól og hiti en þó svo að það sé yndislegt þá er Emilía mikli óduglegri að sofa í svona hita, alveg sama hvernig ég klæði hana, þá vaknar hún eftir hálftíma og það skiptir litlu hvort það er í vagninum út á svölum eða í labbitúrnum.

Emilía hefur verið með einhverja stæla á brjósti undanfarið og stundum bara hreinlega þverneitað að drekka, og þegar hún drekkur þá drekkur hún frekar stutt, ég er því að reyna að setja hana oftar á brjóstið svo að hún fái nú nóg þessi elska. Þetta gerist stundum þegar börn nálgast 3ja mánaða aldurinn að þau neiti brjóstinu, hún Emilía er greinilega mjög dæmigert barn. Þetta heitir víst brjóstaverkfall eða nursing strike, allt er nú til, þá vilja börnin ekki brjóstið, en sem betur fer er þetta eitthvað tímbundið og vona ég að þetta fari nú að líða hjá.
Annars er Emilía Ólöf yndisleg og virðist dafna vel allaveganna fáum við staðfestingu á því á mánudaginn þegar hjúkrunarkonan kemur í heimsókn þá verður hún 3já mánaða gömull...vá hvað tíminn líður hratt
Svo fer hún í sprautur hjá lækninum á þriðjudaginn og er ég handviss um að hún eigi eftir að standa sig með sóma.

Annars verð ég að fara að byrja að læra undir próf sem ég er búin að skrá mig í, veit ekki hvenær það er en líklega í byrjun júní, svo komum við heim fljótlega eftir það, get ekki beðið:)

Gat ekki valið svo ég setti bara fullt af myndum af dúllunni....
Algjör rúsína
flott í bleiku
Hákon með Emilíu... he he hún er svo mikill krakki á þessari mynd
Þessi var tekin á Íslandi í páskafríinu
Á leið í bað
Eitthvað voða hissa
Á leiðinni út í sólina