HTML visitor Tracker

Tuesday, June 26, 2007

Hæ allir
ég ætla að sleppa því að afsaka bloggleysið og byrja bara.....við erum þá búin að vera á Íslandi síðan 6. júní, s.s ekkert búin að láta mikið fyrir okkur fara, bara svona temmilega mikið.

Ég og Emilía Ólöf erum búnar að vera bæði á Eyrarbakka og í bænum, við verðum í Breiðholtinu til 5.júlí og svo í vesturbænum frá 7. - 1. ágúst og svo í Hafnafirðinum í ágúst, ss. á víð og dreif um bæinn.

Emilía er voða hress, aðeins búin að vera stríða mömmu sinni og pabba með svefninn en vonandi allt á góðri leið. Ég er að fara með hana til hjúkkunnar í vikunni í almennt tjekk, finn alveg að hún er búin að þyngjast fullt, farin að síga vel í.

Emilía fór í sína fyrstu sundferð í gær og stóð sig eins og hetja, Magga og Freyja komu með og pabbi tók myndir, hún var algjör rúsína í bleika blómasundbolnum sínum og buslaði og lék sér í vatninu.


Emilía er búin að vera voða heppin og hefur fengið fína kjóla og föt frá ömmum sínum og öfum, alltaf í nýjum fötum, ótrúlega sumarleg.