HTML visitor Tracker

Friday, July 13, 2007

Emilía á flandri...

Undanfarna daga hefur Emilía búið á fjórum stöðum víðs vegar um borgina. Hún á svo eftir að búa á a.m.k. tveimur stöðum til viðbótar í sumar. Svo var merkisdagur í hennar lífi um daginn þegar hún fékk sinn fyrsta graut.

Allt flutningavesenið okkar hefur reynt svolítið á svefnvenjur hennar og einnig foreldrana en nú er svo komið að ég er byrjaður á svæfingarprógrammi sem á við vísindaleg rök að styðjast, skv. Behavioural fræðum sálfræðinnar.

Á mánudaginn var byrjaði prógrammið og þó það sé ekki komin mikil reynsla á það, þá er meðalsvæfingartíminn sem og staðalfrávik byrjað að lækka hægt og bítandi sem gefur okkur vísbendingu um að þetta er að virka þokkalega. Tíminn mun þó leiða í ljós hvort prógrammið og pabbinn haldi þetta út, en þetta þarf að ástunda á hverju kvöldi og getur tekið fleiri daga að virka. Markmiðið með prógramminu er að barnið geti svæft sig sjálft.

Meðalsvæfingartíminn er sem stendur: 46 mín.
og staðalfrávikið: 17 mín.

Jæja, hér koma nokkrar myndir sem eru teknar í heimsókn til Láru um daginn.


Emilíu finnst gaman í félagsskap


Sjáið bara, það er skemmtilegt með mömmu, Ýri, Agli og Siggu


Hérna er Emilía og Egill að æfa dans held ég bara


Voða fínt þetta parket hjá Láru


Já, alveg gegnheilt tíhíííí...